Tónlistarhúsin

Ólafsfjarðarkirkja

Ólafsfjarðarkirkja er í Ólafsfjarðarsókn í Ólafsfjarðarprestakalli og prestur þar er núna Sr. Stefanía Steinsdóttir. Ólafsfjarðarkirkja var byggð og vígð árið 1915, og tók þá við af Kvíabekkjarkirkju fyrir íbúa „Hornsins“.

Menningarhúsið Tjarnarborg

Í Menningarhúsinu fer fram fjölbreytt menningarstarfsemi allt árið um kring. Hægt er að fá húsið leigt undir fundi, ráðstefnur, veisluhöld og hina ýmsu mannfagnaði. Facebook.

Umsjón með húsinu hefur Snjólaug Ásta Sigurfinnsdóttir.

Kaffi Klara/Gistihús Jóa

Lítil og heimilislegt gisti- og kaffihús í hjarta bæjarins. Eigendur gistihússins eru þau hjónin Ida Marguerite Semey og Bjarni Guðmundsson.

Pálshús

Pálshús, eitt elsta hús Ólafsfjarðar, er í dag safn og menningar- og fræðslusetur staðsett við Strandgötu 4 í Ólafsfirði. Elsti hluti hússins var reistur 1892 og því er að finna mikla sögu í kringum það. Húsið dregur nafn sitt af Páli Bergssyni, sem í byrjun nítjándu aldar kláraði, ásamt konu sinni Svanhildi Jörundsdóttur, að reisa húsið í þeirri mynd sem við þekkjum í dag. Páll var einn aðalhvatamaðurinn að útgerðarmálum í Ólafsfirði.

Kvíabekkjarkirkja

Kvíabekkur er landnámsjörð Ólafs bekks er nam Ólafsfjörð og er talið að bændakirkja hafi risið þar fljótlega eftir kristnitöku og prestaspítali laust fyrir árið 1330. Á Kvíabekk hafa verið viðburðir á Berjadögum en nú er kirkjan í endurbyggingu og vonast er til að hægt sé að halda messu í kirkjunni á Berjadögum tónlistarhátíð 2023.

Kirkjan í núverandi mynd var byggð 1892. Árið 1889 var reist þar vegleg kirkja en hún fauk af grunni í illviðri 1892.