Svipmyndir úr lífi hjónanna og sjálfstæðisforkólfanna Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar
Fram kemur Dr. Margrét Gunnarsdóttir sagfræðingur
Í erindinu verður sagt frá ævi og störfum Jóns Sigurðssonar og eiginkonu hans Ingibjargar Einarsdóttur. Sérstaklega verður vikið að fjölbreyttum og ólíkum hlutverkum þeirra í Kaupmannahöfn, við innkaup fyrir Íslendinga heima á Fróni, sem forráðamenn heimilis við Austurvegg sem stóð öllum opið og þar sem gestagangur var mikill og reglulega haldnar veislur. Heimili hjónanna var auk þess sannur skjólsveggur þegar leita þurfti læknishjálpar í Höfn, jafnvel um mánaða- og áralangt skeið.