Listamennirnir

Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari

Ólöf Sigursveinsdóttir er sellóleikari og listrænn stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Berjadaga. Hún hóf sellónám sex ára gömul og lærði hjá virtum kennurum, meðal annars Noru Kornblueh, Bryndísi Höllu Gylfadóttur og Gunnari Kvaran. Síðar nam hún við Tónlistarháskólann í Stuttgart, þar sem hún lauk bæði bakkalár- og meistaraprófi í einleik á selló, samhliða námi í hljómsveitar- og kórstjórn.Ólöf hefur komið fram sem einleikari víða um heim og flutt sellókonserta eftir Elgar og Schumann með íslenskum og erlendum hljómsveitum. Í listsköpun sinni leggur hún áherslu á nýsköpun og þverfaglegt samstarf, meðal annars í verkinu Hljóðmynd sjötta svítan, þar sem sjötta sellósvíta Bachs mætir myndlist í samstarfi við Sigtrygg Bjarna Baldvinsson.Hún leikur á barokkselló, er einn stofnenda ReykjavíkBarokk og stofnaði strengjasveitina Íslenskir strengir. Samhliða kennslu og meistaranámi við Listaháskóla Íslands hefur hún starfað við dagskrárgerð fyrir Rás 1 og SWR í Þýskalandi og komið reglulega fram í Norðurljósum í Hörpu sem stjórnandi og einleikari. Frá árinu 2013 hefur Ólöf verið listrænn stjórnandi Berjadaga, þar sem hún samtvinnar náttúru og listsköpun.

Árangur Berjadaga hefur byggst á velvilja og áhuga íbúa og fyrirtækja bæði í Ólafsfirði og Reykjavík. Stuðningur þeirra hefur verið ómetanlegur, með sérstökum þökkum til einstaklinga á borð við Jón Þorsteinsson (1951–2024), Ástu Sigurfinnsdóttur, Önnu Maríu Guðlaugsdóttur, Maríu Bjarney Leifsdóttur og Snjólaugu Kristinsdóttur. Hátíðin þakkar árangur einnig ljósmyndurunum Ólafi Kristni ljósmyndara, Sigursveini Magnússyni, Guðnýju Ágústsdóttur, og Arnoldi Björnssyni.

// English //

Ólöf Sigursveinsdóttir is a cellist and artistic director of the Berjadagi music festival. She began studying cello at the age of six and studied with renowned teachers, including Nora Kornblueh, Bryndís Hölla Gylfadóttir and Gunnar Kvaran. She later studied at the Stuttgart University of Music, where she completed both a bachelor’s and master’s degree in solo cello, while also studying orchestral and choral conducting. Ólöf has performed as a soloist around the world and performed cello concertos by Elgar and Schumann with Icelandic and foreign orchestras. In her artistic creation, she emphasizes innovation and interdisciplinary collaboration, including in the work Sound Picture Sixth Suite, where Bach’s Sixth Cello Suite meets visual art in collaboration with Sigtrygg Bjarni Baldvinsson. She plays the baroque cello, is one of the founders of ReykjavíkBarokk and founded the string ensemble Íslenskir ​​strengir. In parallel with teaching and her master’s degree at the Iceland Academy of the Arts, she has worked on programming for Rás 1 and SWR in Germany and has regularly performed at Norðurljós in Harpa as a conductor and soloist. Since 2013, Ólöf has been the artistic director of Berjadagi, where she combines nature and artistic creation.

Hrólfur Sæmundsson baritón

Hrólfur lauk meistaragráðu í einsöng frá New England Conservatory í Boston árið 2001 með hæstu einkunn, eftir nám við Söngskólann í Reykjavík. Hann er fastráðinn við óperuhúsið í Aachen í Þýskalandi, þar sem hann hefur sungið fjölda burðarhlutverka, meðal annars Papageno, Evgení Onegin, Pelléas, Leporello, Ford og greifann í Brúðkaupi Fígarós, auk þess sem hann hefur tekið að sér Wagnerhlutverkið Kurwenal í Tristan og Isolde. Hrólfur hefur komið víða fram á tónleikum í Evrópu og Bandaríkjunum og hlotið lof gagnrýnenda fyrir túlkun sína á krefjandi hlutverkum. Hann hefur gefið út hljóðrit sem hlotið hafa góða dóma, meðal annars með verkum eftir Sir John Tavener og Gunnar Reyni Sveinsson. Hrólfur var jafnframt stofnandi og listrænn stjórnandi Sumaróperunnar og hlaut listamannalaun árið 2007.

//Englsh//

Hrólfur graduated with a master’s degree in solo singing from the New England Conservatory in Boston in 2001 with the highest honors, after studying at the Reykjavík Singing School. He is a permanent resident at the Aachen Opera House in Germany, where he has sung numerous leading roles, including Papageno, Eugene Onegin, Pelléas, Leporello, Ford and the Count in The Marriage of Figaro, as well as the Wagner role of Kurwenal in Tristan und Isolde. Hrólfur has performed widely in concerts in Europe and the United States, receiving critical acclaim for his interpretation of challenging roles. He has released well-received recordings, including works by Sir John Tavener and Gunnar Reyni Sveinsson. Hrólfur was also the founder and artistic director of the Summer Opera and received an artist’s salary in 2007.

.

Sigursveinn Magnússon píanó og Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran

Sigursveinn: Að loknu nám hér heima í Tónlistarskólanum í Reykjavík og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar stundaði Sigursveinn Magnússon framhaldsnám við Royal Academy of Music í London og síðar við Western Michigan University í Bandaríkunum. Þessi ár lagði hann stund á nám í hornleik, píanóleik og hljómsveitarstjórn. Síðar nam hann við Tónlistarháskólann í Vínarborg og dvaldi eitt námsár í Danmörku. Ásamt störfum sínum sem tónlistarskólastjóri hefur Sigursveinn starfað að félags- og skipulagsmálum á sviði tónlistar, verið virkur sem útsetjari, kvæðamaður, kórsöngvari og meðleikari og stjórnað hljómsveitum og kórum.

Sigrún: Sigrún hóf söngnám hjá Guðrúnu Sveinsdóttur og Engel Lund við Tónlistarskólann í Reykjavík. Framhaldsnám stundaði hún við Royal Academy of Music í London hjá Marjorie Thomas, í Kalamazoo, Bandaríkjunum í söngstúdíói Fay Smith og við Tónlistarháskólann í Vínarborg. Sigrún hefur komið fram með Kammersveit Reykjavíkur, sungið hlutverk í Íslensku óperunni, starfað með sönghópnum Hljómeyki og komið fram á tónleikum hér heima og erlendis. Sigrún kennir við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

//English//

Sigursveinn: After completing his studies at the Reykjavík School of Music and the Sigursveinn D. Kristinsson School of Music, Sigursveinn Magnússon pursued postgraduate studies at the Royal Academy of Music in London and later at Western Michigan University in the United States. During these years he studied horn playing, piano playing and conducting. He later studied at the Vienna Academy of Music and spent a year studying in Denmark. In addition to his work as a music school principal, Sigursveinn has worked on social and organizational issues in the field of music, has been active as an arranger, composer, choir singer and accompanist, and has conducted orchestras and choirs.

Sigrún: Sigrún began her singing studies with Guðrún Sveinsdóttir and Engel Lund at the Reykjavík School of Music. She pursued postgraduate studies at the Royal Academy of Music in London with Marjorie Thomas, in Kalamazoo, USA at Fay Smith’s singing studio and at the Vienna Academy of Music. Sigrún has performed with the Reykjavík Chamber Orchestra, sung roles in the Icelandic Opera, worked with the singing group Hljómeyki and performed in concerts here and abroad. Sigrún teaches at the Sigursveinn D. Kristinsson Music School.

Diddú - Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran

//English below//

Sigrún Hjálmtýsdóttir eða Diddú er ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar. Hún stígur á svið í Menningarhúsinu Tjarnarborg föstudaginn 26. júní kl. 20 og heilsar norðanfólki og öðrum gestum án efa með hlýju og einstökum nærverukrafti.

Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú (f.1955), hefur verið ein ástsælasta söngkona þjóðarinnar um árabil. Einn helsti styrkleiki  hennar er, hversu jafnvíg hún er á sígilda tónlist, jazz og dægurlög. Hún hóf feril sinn á sviði dægurtónlistar sem meðlimur í Spilverki Þjóðanna.   Síðan fór hún í sígillt tónlistarnám og hefur verið mjög afkastamikil allar götur síðan. Hún hefur sungið inná aragrúa hljómplatna,  og tekið þátt í samstarfsverkefnum með ýmsum tónlistarmönnum. Diddú er næstelst sjö systkina og ólst upp í Vesturbænum í Reykjavík. Hún kemur af söngelskri fjölskyldu, bróðir hennar Páll Óskar, er einn af skærustu poppstjörnum Íslands. Diddú nam söng í Reykjavík og síðar við Guildhall School of Music and Drama í London. Hún fór í framhaldsnám til Ítalíu.  Á námsferli sínum vann hún til fjölda viðurkenninga og verðlauna. Diddú hefur sungið stór hlutverk í uppfærslum hjá Íslensku óperunni. Þar má  nefna hlutverk hennar í Carmina Burana, Brúðkaupi Fígarós, Rigoletto, Töfraflautunni, Luciu í Lucia di Lammermoor, La Traviata, Ástardrykknum og Leðurblökunni. Hún söng í Niflungahringnum og Ævintýrum Hoffmanns, sem voru samstarfsverkefni Óperunnar og Þjóðleikhússins. Árið 1992 söng hún í Rigoletto við óperuna í Gautaborg. Árið 2006 söng í óperunni Le Pays eftir J.G. Ropartz á Listahátíð. Síðast söng Diddú hlutverk Næturdrottningarinnar í Töfraflautunni og hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem Söngkona ársins 2011 fyrir túlkun sína á hlutverkinu. Diddú hefur leikið og sungið í sjónvarpsleikritum, s.s. Brekkukotsannál og Silfurtunglinu og kvikmyndunum Karlakórnum Heklu og Bíódögum. Hún hefur sungið inn á fjölda hljómdiska og margoft komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og sungið með kórum bæði kirkjuleg og veraldleg verk. Auk þess hefur hún unnið með Stórsveit Reykajvíkur og hinum rómaða rússneska Terem kvartett. Einir af eftirminnilegustu viðburðum á ferli Diddúar voru tónleikar í Laugardalshöll með José Carreras árið 2001 og árið 2005 hlotnaðist hennni sá heiður að stíga á stokk með Placido Domingo á tónleikum hans í Egilshöll.

Diddú hefur sungið víðsvegar um Evrópu, á Norðurlöndunum, í Bandaríkjunum,  Japan, Kína og  Rússlandi. Árið 1995 var Sigrún sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og Ljónaorðu finnska ríkisins árið 1997.

//English//

Sigrún Hjálmtýsdóttir or Diddú is one of the nation’s most beloved singers, taking to the stage at the Tjarnarborg Cultural Center on Friday, June 26th, greeting northerners and guests with her art, warmth and unique presence. Few Icelandic artists have achieved such a deep connection with the nation as Diddú. With her singing, she has touched the hearts of the nation, from pop songs that enjoyed immense popularity, such as Tunglið, tunglið taktu mig, to magnificent mainroles on the stage of the Icelandic Opera. Last year, she celebrated her 70th birthday with a concert in Harpa Concerthall and is still in full bloom as one of our leading solo singers. Diddú’s career is a testament to her boldness, strength and unwavering enthusiasm, along with the rare gift of attracting new listeners to classic music and making it accessible with professional sensitivity. The concert will be the highlight of Berjadagar – Olafsfjodur Musicfestival 2026.

 

Einar Bjartur Egilsson píanó

Einar Bjartur Egilsson stundaði nám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, Listaháskóla Íslands og Konservatoríið í Maastricht, Hollandi. Hann hefur samið kvikmyndatónlist, spilað á tónlistarhátíðum í Hollandi og á Íslandi og starfað með ýmsum kórum bæði þar og hér heima.

Núorðið starfar Einar aðallega sem meðleikari með ýmsum tónlistarmönnum, nemendum og kórum. Hann heldur tónleika reglulega ásamt því að spila einleiksverk annað slagið. Undanfarin ár hefur hann gefið út tvær hljómplötur með píanóverkum eftir svissneska tónskáldið Frank Baumann auk tveggja breiðskífa með eigin verkum, Heimkomu árið 2015 og Kyrrð árið 2022.

// English //

Einar currently works mainly as an accompanist with various musicians, students and choirs. He gives regular concerts as well as playing solo works from time to time. In recent years he has released two albums of piano works by the Swiss composer Frank Baumann as well as two LPs of his own works, Heimkomu in 2015 and Kyrrð in 2022

 

Svavar Knútur - Gítar og söngur

Svavar hefur um árabil verið einn af þeim listamönnum sem kunna að kveikja ljós í salnum með nærveru, hlýju og tónlist sem snertir. Það gerir hann í Ólafsfjarðarkirkju 27. júní nk. kl. 20:00. Hann sækir innblástur í íslenskan textaarf, leikur sér með þjóðsögur, vísur og frásagnir, og leiðir áheyrendur inn í heim þar sem orð og tónar fléttast saman af einstakri einlægni. Á efnisskránni ‘Vakað með vísum’ laugardaginn 27. júní leikur Svavar sér með íslenskan textaarfi, þjóðsögur og þekkt ljóð, skapar hlýja og heillandi tónlistarvöku með söng og stemningu sem án efa renna saman í eina ógleymanlega upplifun.

// English //

For years, Svavar has been one of those artists who knows how to light up the hall with presence, warmth and touching music. He will do so in Ólafsfjordur Church on the Saturday – June 27th. He draws inspiration from Icelandic textual heritage, plays with folk tales, verses and stories, and leads the audience into a world where words and tones intertwine with unique sincerity. In the program ‘Vakað með vísum’ on Saturday, June 27th, Svavar plays with Icelandic textual heritage, folk tales and well-known poems, creating a warm and charming musical awakening with singing and atmosphere that undoubtedly merge into one unforgettable experience for guests of Berjadagar – Olafsfjordur Music Festival.