BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Berjadagar - ECPv6.9.0//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Berjadagar
X-ORIGINAL-URL:https://berjadagar.is
X-WR-CALDESC:Events for Berjadagar
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240617T150000
DTEND;TZID=UTC:20240617T160000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T132037Z
LAST-MODIFIED:20240520T132037Z
UID:10000036-1718636400-1718640000@berjadagar.is
SUMMARY:\,\,Þjóðbúningur verður til’
DESCRIPTION:– spurningar og svör um íslenska þjóðbúninginn \nFram kemur Dr. Margrét Gunnarsdóttir sagnfræðingur \nMargrét er að leggja lokahönd á ritun bókar um búninginn og sögu hans\, Þjóðbúningur verður til\, sem kemur út í haust. Sérstaklega verður sagt frá helsta einkennistákni íslenska hátíðarbúningsins\, faldinum\, hvítri strýtu sem prýddi höfuð íslenskra kvenna um aldalangt skeið. Hver vegna þótti faldurinn eins merkilegur og raun ber vitni? Einnig verður sagt frá skotthúfunni og tilurð hennar. Þá verður spjallað um þær breytingar sem urðu á þjóðbúningnum á 19. öld þegar skautbúningur Sigurðar málara var kynntur til sögunnar. Gamlar teikningar og málverk verða skoðuð samhliða spjallinu.
URL:https://berjadagar.is/event/thjodbuningur-verdur-til
LOCATION:Pálshús\, Pálshús\, Strandgata 4\, 625 Ólafsfjörður\, Iceland\, Ólafsfjörður\, 625\, Iceland
CATEGORIES:Spjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240616T200000
DTEND;TZID=UTC:20240616T210000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T123055Z
LAST-MODIFIED:20240520T123055Z
UID:10000034-1718568000-1718571600@berjadagar.is
SUMMARY:Tveir flyglar í Tjarnarborg Flytjendur
DESCRIPTION:Flytjendur: \nHrólfur Sæmundsson \nFlygladúóið Sóley \nÓlöf Sigursveinsdóttir selló \n  \nLeikið verður á tvo flygla í Menningarhúsinu Tjarnarborg! Verið er að skipuleggja flutning á konsertflygli sem kemur til með að veita sérlegan kraft inní þriðja og síðasta tónleikakvöldið á Berjadögum 2024. Orkan fyllir húsið með þjóðlegum tónsmíðum á borð við sönglög eftir Jón Leifs og nýjar íslenskar tónsmíðar eftir ung íslensk tónskáld fyrir tvö píanó. Píanóleikararnir Laufey og Sólborg leika einnig með Hrólfi þegar dramatísk tónlist Giuseppe Verdi (1813-1901) flæðir um húsið við libretto/texta Francesco Maria Piave (1810-1876). Hrólfur kemur frá Þýskalandi til að tónleikagestir fái þrjár senur úr óperu Verdis\, Macbeth\, beint í æð! Andi Joseph Haydn svífur yfir þegar sellókonsert hans í D-dúr verður fluttur með fuglahljóðum\, selló og tveimur flyglum! \nAth. Kl. 21:30 stíga KK & Ellen á svið
URL:https://berjadagar.is/event/tveir-flyglar-i-tjarnarborg-flytjendur
LOCATION:Tjarnarborg\, Aðalgötu 13\, Ólafsfirði.\, Ólafsfjörður\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240616T113000
DTEND;TZID=UTC:20240616T133000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240613T163411Z
LAST-MODIFIED:20240613T163411Z
UID:10000037-1718537400-1718544600@berjadagar.is
SUMMARY:Brunch Berjadaga
DESCRIPTION:Gúrmeyja Ólafsfjarðar\, Hjördís Arnardóttir galdrar fram rétti fyrir gesti. Vinsamlega pantið borð hjá Hjördísi á Kaffi Klöru.
URL:https://berjadagar.is/event/brunch-berjadaga
LOCATION:Kaffi Klara\, Strandgata 2\, Ólafsfjörður\, Iceland\, Ólafsfjörður\, Iceland
CATEGORIES:Spjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240615T200000
DTEND;TZID=UTC:20240615T213000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T122854Z
LAST-MODIFIED:20240520T122854Z
UID:10000033-1718481600-1718487000@berjadagar.is
SUMMARY:Færeyjar og Ísland dansa tangó
DESCRIPTION:Flytjendur: \nSigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó sópran \nJóhannes Andreasen píanó \nHrólfur Sæmundsson baritón \nÁrmann Helgason klarinett \n– \nÓlöf Sigursveinsdóttir selló \n  \nÁ þessum tónleikum verður sérstakur gestur\, píanóleikarinn Jóhannes Andreasen  frá Færeyjum. Hann er atkvæðamikill í færeysku tónlistarlífi og spilar einnig á alþjóðlegu tónleikasviði um árabil. Ármann Helgason er gestum Berjadaga kunnur og þeim sem fylgjast með íslensku tónlistarlífi. Á þessum tónleikum leiða saman hesta sína þau Jóhannes\, Ármann og Ólöf í Beethoven klarinettutríói op. 11. Sigríður Ósk Kristjánsdóttir  og Ármann flytja sönglag Sigursveins D. Kristinssonar fyrir söng og klarinett og Sigríður syngur einsöng við undirleik Jóhannesar í íslenskum lögum eftir Sigvalda Kaldalóns og Emil Thoroddsen. Óperusöngvarar kvöldsins\, Hrólfur og Sigríður syngja perlur úr óperuheiminum og tónleikarnir enda á stórkostlegri tónsmíð Astor Piazzolla\, Le Grand tango fyrir selló og píanó! Góða skemmtun og verið velkomin.  \n  \nHrólfur Sæmundsson\, Ólöf og Jóhannes munu að auki frumflytja Vögguvísu við ljóð Jakobs Jóh. Smára eftir tónskáldið Báru Grímsdóttur til heiðurs Jóni Þorsteinssyni stórsöngvara og söngkennara sem lést 4. maí sl.
URL:https://berjadagar.is/event/faereyjar-og-island-dansa-tango
LOCATION:Tjarnarborg\, Aðalgötu 13\, Ólafsfirði.\, Ólafsfjörður\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240615T153000
DTEND;TZID=UTC:20240615T163000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T122716Z
LAST-MODIFIED:20240520T122716Z
UID:10000032-1718465400-1718469000@berjadagar.is
SUMMARY:Létt stemmning á Hornbrekku fyrir vistmenn\, ættingja þeirra og þá sem vilja njóta í kaffi og músík!
DESCRIPTION:Flytjendur:  \nFjölskyldan úr Garðshorni: Sigursveinn\, Sigrún\, Diljá og Ólöf
URL:https://berjadagar.is/event/lett-stemmning-a-hornbrekku-fyrir-vistmenn-aettingja-theirra-og-tha-sem-vilja-njota-i-kaffi-og-musik
LOCATION:Hornbrekka Dvalarheimili\, Hornbrekku\, 626 Ólafsfirði (dreifbýli)\, Ólafsfjörður\, 625\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240615T133000
DTEND;TZID=UTC:20240615T143000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T122218Z
LAST-MODIFIED:20240520T122218Z
UID:10000031-1718458200-1718461800@berjadagar.is
SUMMARY:Gleðigjafarnir Ingibjörg og Jón
DESCRIPTION: Svipmyndir úr lífi hjónanna og sjálfstæðisforkólfanna Ingibjargar Einarsdóttur og Jóns Sigurðssonar \nFram kemur Dr. Margrét Gunnarsdóttir sagfræðingur \nÍ erindinu verður sagt frá ævi og störfum Jóns Sigurðssonar og eiginkonu hans Ingibjargar Einarsdóttur. Sérstaklega verður vikið að fjölbreyttum og ólíkum hlutverkum þeirra í Kaupmannahöfn\, við innkaup fyrir Íslendinga heima á Fróni\, sem forráðamenn heimilis við Austurvegg sem stóð öllum opið og þar sem gestagangur var mikill og reglulega haldnar veislur. Heimili hjónanna var auk þess sannur skjólsveggur þegar leita þurfti læknishjálpar í Höfn\, jafnvel um mánaða- og áralangt skeið. 
URL:https://berjadagar.is/event/gledigjafarnir-ingibjorg-og-jon
LOCATION:Menntaskólinn á Tröllaskaga\, Ægisgötu 13\, 625 Ólafsfjörður\, Iceland\, Ólafsfjörður\, 625\, Iceland
CATEGORIES:Erindi
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240614T213000
DTEND;TZID=UTC:20240614T223000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T121620Z
LAST-MODIFIED:20240520T121620Z
UID:10000030-1718400600-1718404200@berjadagar.is
SUMMARY:\,Brasilískt kvöld’
DESCRIPTION:Flytjendur: \nGuito Thomas gítar og söngur \nRodrigo Lopes slagverk \n  \nBúið ykkur undir rytma\, sveiflu og skemmtun af besta toga! Brasilísku lögin fá tónleikagesti til að dilla sér og syngja\, klappa í takt og gleðjast. Góða skemmtun og verið velkomin!
URL:https://berjadagar.is/event/brasiliskt-kvold
LOCATION:Tjarnarborg\, Aðalgötu 13\, Ólafsfirði.\, Ólafsfjörður\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240614T200000
DTEND;TZID=UTC:20240614T210000
DTSTAMP:20260530T134220
CREATED:20240520T121301Z
LAST-MODIFIED:20240610T172331Z
UID:10000029-1718395200-1718398800@berjadagar.is
SUMMARY:Hvað ertu tónlist? \,\,Nonnakvöld’’ til heiðurs Jóni Þorsteinssyni
DESCRIPTION:Flytjendur: \nSigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó-sópran \nSólveig Thoroddsen söngur\, barokk- og gotnesk harpa \nBára Grímsdóttir kvæðakona \nÓlöf Sigursveinsdóttir barokkselló \nSergio Coto Blanco endurreisnarlútur \n  \n\,\,Nonnakvöld’’ er upphafskvöld þessarar glæsilegu tónlistarhátíðar á Norðurlandi-eystri og verður Jóns Þorsteinssonar stórsöngvara og söngkennara minnst fyrir að vera síungur og kraftmikill stuðningsmaður Berjadaga. Hann styrkti hátíðina með umtalsverðum hætti síðustu árin með kunnáttu sinni\, víðsýni og markverðri aðstoð! Hann lést 3. maí sl. og var ólafsfirðingur í húð og hár einsog maður getur sagt enda vildi hann hvergi annarsstaðar vera. Með því að nefna upphafskvöld Berjadaga framvegis \,\,Nonnakvöld“ vill listrænn stjórnandi þakka fyrir sig og um leið heiðra minningu hans. Vonandi verða þau mörg \,\,Nonnakvöldið“ í framtíðinni því Nonni var síungur einsog tónlistin! \nHans verður einnig minnst með frumflutningi á Vögguvísu eftir Báru Grímsdóttur fyrir píanó\, baritón og selló á tónleikum 15. júní. \nÍslenskar rímur\, ólíkar raddir\, sönglög með hörpuslætti og forn lútuleikur lýsa þessu \,\,fyrsta Nonnakvöldi’’. \nBára Grímsdóttur tónar inn í kirkjurýmið sem ein stök rödd og syngur rammíslenskt. Því næst hljóma strengjahljóðfæri einsog lútur í endurreisnarstíl\, gotnesk harpa og sönglög frá endurreisnartímabili tónlistarsögunnar í flutningi hjónanna Sólveigar og Sergio sem sérhæfa sig í endurreisnar-og barokktónlist. Þetta júníkvöld syngur Sigríður Ósk Kristjánsdóttir tvær einstakar barokkaríur við hörpuslátt og lög í gömlum stíl.. Kvöldið er því tileinkað þeim tíma þegar tæknin var víðs fjarri og kertaljós lýstu á nótnapappír tónskálda um hinn evrópska heim þar sem hljóðfæratónlist þróaðist lengi vel innan konungshirða og hjá erkibiskupum. Tónlistin var þá einsog nú sköpun andans\, huggun\, upplyfting og ekki síst hljómafræði sem \,bar í sér’ lífsins gang og tilgang. Mörg tónskáld þessa upphafstíma tónlistarsögunnar dóu þó í sárri fátækt og skorti. En fengu fróun ævilangt af því að skrifa hverja tónsmíðina á fætur annarri og það í bunkum og oft svo hundruðum skipti.  Hér á Íslandi var sungið á tímum vosbúðar\, eldgosa og þrenginga; innan um torfveggi og í afskekktum kirkjum því söngur var lífsnauðsyn þeim sem vildi lyfta andanum. Góða skemmtun og verið velkomin og \,okkar fyrsta Nonnakvöld’!
URL:https://berjadagar.is/event/hvad-ertu-tonlist-nonnakvold-til-heidurs-joni-thorsteinssyni
LOCATION:Ólafsfjarðarkirkja\, Ólafsfjarðarkirkja\, 39F2+9M5\, Strandgata\, Ólafsfjörður\, Iceland\, Ólafsfjörður\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar
END:VEVENT
END:VCALENDAR