8:15
Kaffibolli og spjall á Kaffi Klöru..
8:45
Keyrt útá Kleifar í samfloti
9-11 Ganga
Hægferðug ganga eftir kindagötum til minningar um Ástu Sigríði Kristinsdóttur. Grasa- og gróðurskoðun í anda Siggu í Garðshorni (1913-2011) því Sigga var vinkona Maríu Bjarneyju Leifsdóttur og átti með henni ógleymanlegar stundir í gegnum árin í Ólafsfirði. Við skoðum sveppi, grös og íslensku flóruna, njótum útsýnis og leitum inn á við. Engin hætta á að fólk villist því leiðin er einföld. Gestir og flytjendur setjast í móinn. Aldrei að vita nema að ólafsfirskir ástarpungar komist með nýbakaðir í fötu.